Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 477/2023-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 477/2023

Fimmtudaginn 14. desember 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 4. október 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. september 2023, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk greiddar atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun á árinu 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. september 2023, var kæranda tilkynnt að bótaréttur væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hún hefði ekki tilkynnt um tilfallandi tekjur eða vinnu. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hún hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 64.147 kr., að meðtöldu 15% álagi, sem yrðu innheimtar samkvæmt 39. gr. laga nr. 54/2006.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 4. október 2023. Með bréfi, dags. 6. október 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 25. október 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 26. október 2023. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi tekur fram að hún telji ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar ósanngjarna. Vinnumálastofnun hafi með bréfi 8. september 2023 óskað eftir gögnum um tekjur í maí og júní. Kærandi hafi sent svar 10. september 2023 og tilgreint hvers vegna hún hefði ekki tilkynnt áður. Einnig hafi kærandi sent launaseðla. Kærandi hafi hvorki fengið svar né tilkynningu um að skýringin væri ekki nógu góð eða að það vantaði gögn. Síðan hafi kærandi fengið bréf 19. september 2023 með ákvörðun um að fella niður bótarétt í tvo mánuði. Að mati kæranda sé það rosalega harkaleg refsing. Kærandi hafi verið búin að tilkynna prufu daga í vinnu bæði í maí og júní, rafrænt og símleiðis. Kærandi hafi skráð sig strax af bótum þegar hún hafi verið ráðin í vinnu. Kærandi hafi rætt við Vinnumálastofnun í tölvupósti og síma um tekjutilkynningu þar sem hún hafi ekki vitað um áætluð laun og ekki getað skráð það fyrr en hún hafi fengið launaseðil.

Að mati kæranda sé framkoma Vinnumálastofnunar mjög ómannleg og ósanngjörn. Aðalreglan sé að skrá sig af bótum og reyna tímanlega að tilkynna um vinnu. Það hafi kærandi gert. Ekki sé ástæða til að fella niður bætur í tvo mánuði og skilja kæranda eftir tekjulausa í tvo mánuði með barn á heimilinu vegna óáætlaðra tekna sem tilkynnt sé of seint. Það sé virkilega ósanngjarnt.

Kærandi skilji það að ofgreiðsla í júní verði leiðrétt en ekki sé hægt að leiðrétta þann skaða sem tekjuleysi í tvo mánuði valdi henni. Kærandi muni fá innheimtubréf vegna ógreiddra reikninga og eigi á hættu að missa íbúð sína. Einnig skilji kærandi ekki hvar hún eigi að fá pening fyrir mat og hvernig hún geti verið virk í atvinnuleitinni þar sem það þurfi jákvæðni, heilsu, orku og einfaldlega pening fyrir bensíni til að komast í atvinnuviðtal.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun með umsókn, dags. 15. júní 2022. Með erindi, dags. 16. júní 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 82%. Kærandi hafi verið afskráð þann 1. júlí 2023. Kærandi hafi aftur sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 15. ágúst 2023. Með erindi, dags. 30. ágúst 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 91%.

Í kjölfar reglulegs eftirlits innan Vinnumálastofnun hafi komið í ljós að kærandi hefði verið með óútskýrðar tekjur í maí og júní 2023 frá B og í júní 2023 frá C. Með erindi, dags. 8. september 2023, hafi þess verið óskað að kærandi veitti stofnuninni skýringar vegna umræddra tekna, auk launaseðla. Þann 10. september 2023 hafi Vinnumálastofnun borist hluti launaseðla vegna viðkomandi tímabila og skýringar. Samkvæmt umræddum launaseðlum hafi kærandi fengið greidd laun að fjárhæð 21.842 kr. í maí 2023 en launaseðill vegna tekna upp á 253.999 kr. í júní 2023 hafi ekki borist. Í skýringum kæranda segi að hún hafi aldrei fengið þann launaseðil vegna sumarleyfis bókara. Í kjölfar þess að hluti umbeðinna gagna hafi borist Vinnumálastofnun hafi kæranda verið tilkynnt með erindi, dags. 19. september 2023, að þar sem hún hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um nauðsynlegar upplýsingar sem höfðu áhrif á rétt hennar til atvinnuleysisbóta væri bótaréttur hennar felldur niður frá og með 19. september 2023 í tvo mánuði. Sú ákvörðun hafi verið var tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Jafnframt hafi kæranda verið tilkynnt að samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli hennar hefði hún fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 64.147 kr., að meðtöldu álagi, sem innheimtar yrðu samkvæmt 3. mgr. 39. gr. laganna.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Kærð sé ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. september 2023, þess efnis að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sökum þess að hún hafi ekki tilkynnt stofnuninni um tekjur sínar í maí og júní 2023.

Ágreiningur í máli þessu snúi meðal annars að því hvort kæranda hafi tilkynnt Vinnumálastofnun um tekjur sínar B og frá C. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé rík áhersla lögð á upplýsingaskyldu atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun. Atvinnuleitanda beri meðal annars að tilkynna stofnuninni um allar breytingar á aðstæðum sem gætu haft áhrif á rétt viðkomandi til greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 2. mgr. 14. gr. laganna. Í 3. mgr. 9. gr. sé sérstaklega kveðið á um skyldu atvinnuleitanda til að tilkynna stofnuninni um tekjur vegna tilfallandi vinnu. Þar segi orðrétt:

„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“

Vinnumálastofnun árétti að upplýsingaskylda atvinnuleitanda sé ítrekuð á öllum stigum umsóknarferlis um atvinnuleysisbætur. Við upphaf umsóknar séu atvinnuleitendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar á meðal upplýsingaskyldu. Í lok umsóknarferlis staðfesti allir atvinnuleitendur að þeir hafi kynnt sér þau atriði. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar sé jafnframt meðal annars að finna ítarlegar upplýsingar til handa atvinnuleitendum um skyldur þeirra sem hafi þegið tekjur samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta og hvernig eigi að skrá slíkar tekjur.

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. hafi kæranda borið að tilkynna Vinnumálastofnun um umræddar tekjur. Að sögn kæranda hafi hún tilkynnt stofnuninni að hún hefði hafið störf á reynslutíma. Vinnumálastofnun þyki rétt að ítreka að öll þau samskipti sem starfsmenn stofnunarinnar eigi við atvinnuleitendur séu skráð í kerfum stofnunarinnar af viðkomandi starfsmanni, þar á meðal öll símtöl. Í gögnum málsins sé hvergi að sjá að kærandi hafi haft samband við Vinnumálastofnun að eigin frumkvæði vegna vinnu sinnar. Bent sé á að eftir boðun í viðtal sem hafi verið send 15. maí 2023 hafi kærandi óskað eftir öðrum tíma þar sem viðtal á föstudagsmorgni hentaði henni ekki. Ný boðun hafi verið send 17. maí í viðtal þann 24. maí sem kærandi hafi svarað 23. maí um að hún hefði farið í atvinnuviðtal þann dag og færi í prufu á sama degi og viðtal ætti að eiga sér stað. Þann 25. maí hafi kærandi átt viðtal við ráðgjafa Vinnumálastofnunar og lýst þar aðstæðum í prufu sem henni hafi ekki hugnast en einnig að hún ætti aðra prufu eftir sem hún myndi upplýsa stofnunina um „í næstu viku.“ Ekki hafi náðst í kæranda símleiðis þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir dagana 6. til 8. júní 2023 og kæranda hafi verið send viðtalsboðun með textaskilaboðum, dags. 8. júní 2023, um viðtal, dags. 13. júní klukkan 14:00. Þann 12. júní hafi kærandi sent tölvupóst og án þess að tilgreina nánar um dagsetningar í prufum hafi þær ekki gengið upp. Kærandi hafi óskað þess að fá frestun á viðtal sem hafi verið boðað daginn eftir á grundvelli þess að hún væri að öllum líkindum komin með starf. Þann sama dag sé skráð í samskiptasögu að kærandi hafi fengið tvo daga í prufu og að hún hefði fengið greitt fyrir annan daginn. Enn fremur segi að hún ætli sér að skrá tilkynningu um þær tekjur á „Mínum síðum“. Jafnframt hafi kærandi upplýst um að hún biði þess að vera kölluð inn á prufuvakt þó að dagsetning hennar lægi ekki fyrir.

Ein meginskylda atvinnuleitanda sé að tilkynna Vinnumálastofnun um allar þær tekjur sem viðkomandi þiggi á meðan hann fái greiddar atvinnuleysisbætur. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar megi í því skyni finna ítarlegt kennslumyndband um hvernig tilkynna beri tekjur til stofnunarinnar, en þar sé meðal annars tiltekið að tilkynna skuli stofnuninni um tekjur með minnst dags fyrirvara og að skrá skuli fjárhæð tekna inni á ,,Mínum síðum“. Kærandi hafi greint frá því að hún hefði starfað á reynslutíma. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli kæranda hafi hún þó hvorki látið stofnunina vita þegar hún hafi hafið störf né þegar hún hafi lokið þar störfum. Eðli máls samkvæmt geti atvinnuleitandi ekki þegið óskertar atvinnuleysistryggingar samhliða launuðum störfum. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kæranda hefði mátt vera fulljóst að henni bæri að tilkynna stofnunni um upphaf og lok vinnu sinnar, auk þeirra tekna sem hún hafi aflað. Í þessu samhengi vísi Vinnumálastofnun jafnframt til úrskurðar úrskurðarnefndarinnar í máli nr. 86/2013 þar sem fram komi að það sé á ábyrgð þess er fái greiddar atvinnuleysisbætur að tryggja að Vinnumálastofnun berist allar nauðsynlegar upplýsingar er geti haft áhrif á rétt hennar til greiðslu atvinnuleysisbóta.

Í ljósi framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt upplýsingaskyldu sína samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Af þeirri ástæðu hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. sömu laga, en ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum í tvo mánuði. Að auki hafi verið innheimtar ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 64.147 kr.

Eins og áður segi hafi kærandi þegið laun frá B og frá C í maí og júní 2023. Laun kæranda í maí hafi verið 21.842 kr. og 253.999 kr. í júní. Tekjur kæranda komi til frádráttar þegar greiddum atvinnuleysisbótum í samræmi við 1. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sem hljóði svo:

„Þegar samanlagðar tekjur af hlutastarfi hins tryggða, sbr. 17. eða 22. gr., og atvinnuleysisbætur hans skv. 32.–34. gr. eru hærri en sem nemur óskertum rétti hans til atvinnuleysisbóta að viðbættu frítekjumarki skv. 4. mgr. skal skerða atvinnuleysisbætur hans um helming þeirra tekna sem umfram eru. Hið sama gildir um tekjur hins tryggða fyrir tilfallandi vinnu, elli- eða örorkulífeyrisgreiðslur samkvæmt lögum um almannatryggingar, um elli- og örorkulífeyrisgreiðslur úr almennum lífeyrissjóðum, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga sem eru komnar til vegna óvinnufærni að hluta, fjármagnstekjur hins tryggða og aðrar greiðslur sem hinn tryggði kann að fá frá öðrum aðilum. Eingöngu skal taka tillit til þeirra tekna sem hinn tryggði hefur haft á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur, sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum.“

Samkvæmt 3. gr. reglugerðar nr. 1657/2021, settri með stoð í 4. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, hafi frítekjumark verið 81.547 kr. á mánuði vegna ársins 2023. Í júní 2023 hafi tekjur kæranda numið hærri fjárhæð en frítekjumark atvinnuleysisbóta. Umræddar tekjur hefðu því réttilega átt að koma til skerðingar á atvinnuleysisbótum í samræmi við 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun hafi hins vegar ekki verið kunnugt um umræddar tekjur og því hafi myndast skuld við stofnunina, samtals að fjárhæð 64.147 kr.

Í 2. mgr. 39. gr. sé kveðið á um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Í framangreindu ákvæði sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. í frumvarpi því er hafi orðið að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. 

Heildarskuld kæranda standi nú í 22.782 kr. og þar af sé álag að fjárhæð 8.367 kr. en skuldajöfnun í síðar tilkomnum greiðslum hafi átt sér stað vegna septembermánaðar upp á 41.365 kr. Eins og kveðið sé á um í lokamálslið 2. mgr. 39. gr. skuli fella niður álagið færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er hafi leitt til skuldamyndunar. Í þessu samhengi vísi Vinnumálastofnun til þess sem að framan hafi verið rakið. Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt upplýsingaskyldu sína gagnvart stofnuninni, sbr. 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ein meginskylda atvinnuleitanda sé að tilkynna stofnuninni um allar tekjur og sé að finna skýr fyrirmæli þess efnis að slíkt skuli gera í gegnum ,,Mínar síður“ atvinnuleitanda. Jafnframt vísi Vinnumálastofnun til þess að það sé á ábyrgð þess er fái greiddar atvinnuleysisbætur að tryggja að Vinnumálastofnun berist nauðsynlegar upplýsingar er geti haft áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. úrskurð nefndarinnar í máli nr. 86/2013. Í ljósi framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að ekki sé tilefni til að fella niður álag á skuld kæranda.

Eins og kæranda hafi verið tilkynnt í ákvörðunarbréfi Vinnumálastofnunar, dags. 9. september 2023, verði ofgreiddum atvinnuleysisbótum skuldajafnað sem nemi 25% af atvinnuleysisbótum í hverjum mánuði á síðar tilkomnum greiðslum í samræmi við 3. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Það sé niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Jafnframt sé það niðurstaða stofnunarinnar að kæranda beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 64.147 kr. samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006, en samkvæmt því skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., án ástæðulausrar tafar.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var með tekjur í maí og júní 2023 frá B og í júní 2023 frá C samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun. Þær upplýsingar bárust Vinnumálastofnun í kjölfar reglulegs eftirlits innan stofnunarinnar í september 2023. Kærandi hefur gert athugasemd við afgreiðslu Vinnumálastofnunar og vísað til þess að hún hafi tilkynnt stofnuninni um prufudaga í vinnu, bæði í maí og júní. Þá hafi hún skráð sig strax af atvinnuleysisbótum þegar hún hafi verið ráðin í vinnu.

Þann 15. júní 2022 var kæranda tilkynnt að Vinnumálastofnun hefði móttekið umsókn hennar um atvinnuleysisbætur. Kæranda var greint frá því að upplýsa þyrfti um allar breytingar á persónulegum högum inni á „Mínum síðum“. Einnig þyrfti að upplýsa um allar tekjur, hlutastarf og tilfallandi vinnu. Þá var kæranda bent á að ítarlegri upplýsingar um réttindi hennar og skyldur væri að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar er að finna kennslumyndband um hvernig tilkynna beri um tilfallandi vinnu eða tekjur á „Mínum síðum“. Þar er meðal annars tiltekið að tilkynna skuli stofnuninni um vinnu með að minnsta kosti dags fyrirvara. Skrá skuli áætlaða upphæð tekna og tekið er fram að ekki sé gerð krafa um að skila launaseðli. Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin að kærandi hefði mátt vita, eða að minnsta kosti haft tilefni til þess að afla sér frekari upplýsinga um skyldu sína til að tilkynna Vinnumálastofnun fyrir fram um framangreindar tekjur með viðeigandi hætti. 

Í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hún tilkynnti stofnuninni ekki fyrir fram um þær tekjur sem hún fékk í maí og júní 2023. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um viðurlög við slíku broti.

Mál þetta lýtur einnig að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að innheimta ofgreiddar bætur vegna framangreindra tekna. Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Þar sem kærandi tilkynnti ekki fyrir fram um framangreindar tekjur fékk hún greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hún átti rétt á. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Líkt og áður greinir tilkynnti kærandi ekki Vinnumálastofnun fyrir fram um þær tekjur sem hún fékk í maí og júní 2023 og er því að mati úrskurðarnefndarinnar ekki tilefni til að fella niður álagið sem stofnunin lagði á endurgreiðslukröfuna.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. september 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum